Sérfræðingur í notenda- og útstöðvaþjónustu á Vestfjörðum

hysing.is · Ísafjörður, Iceland
Location
Ísafjörður, Iceland
Work mode
On-site
Type
Full-time
Seniority
Mid-level
Salary
Not stated
Department
Rekstur og innviðir
Languages
IS
Posted
18 Nov 2026

Verified open 24 Nov 2026 · Source: Teamtailor

About the role

Við leitum að jákvæðum og þjónustulunduðum einstaklingi í fjölbreytt starf á Vestfjörðum. Starfið er samblanda af vettvangsþjónustu, notendaþjónustu og útstöðvarþjónustu.

Í vettvangsþjónustu mætir þú notendum á staðnum og aðstoðar við tölvur, jaðarbúnað, fundarrými og annan búnað sem daglegt skrifstofustarf byggir á. Þess á milli sinnir þú verkefnum í notenda- og útstöðvarþjónustu Advania, þar sem unnið er meðal annars með Microsoft 365, útstöðvar, símalausnir og almenn upplýsingatæknimál viðskiptavina.

Áhersla er lögð á góða þjónustu, skjóta úrlausn og að tækniumhverfi viðskiptavina sé stöðugt, öruggt og einfalt í notkun. Starfið felur í sér ferðir milli starfsstöðva viðskiptavina á Vestfjörðum.

Helstu verkefni

Vettvangsþjónusta

  • Þjónusta og tæknileg aðstoð við notendur á vinnustöðum viðskiptavina

  • Uppsetning, afhending og umsjón með tölvum, símum og jaðarbúnaði

  • Uppsetning og umsjón með prenturum, skjám, fundarrýmum og öðrum búnaði í skrifstofuumhverfi

  • Úrlausn tæknilegra vandamála á staðnum og eftirfylgni í samstarfi við framlínu og sérfræðiteymi

  • Bilanagreining á tölvum, jaðarbúnaði, fundarrýmislausnum og tengingum

Notenda- og útstöðvarþjónusta

  • Fjaraðstoð og úrlausn mála sem berast í gegnum þjónustukerfi Advania

  • Umsjón með útstöðvum, notendum og skýjalausnum viðskiptavina, meðal annars Microsoft 365

  • Aðstoð við símalausnir og almenn upplýsingatæknimál

  • Þátttaka í verkefnum og rekstri með sérfræðiteymum notenda- og útstöðvarþjónustu

Við leitum að einstaklingi sem

  • Hefur ríka þjónustulund og á auðvelt með samskipti

  • Hefur áhuga á tækni og er fljótur að tileinka sér nýja hluti

  • Er lausnamiðaður, forvitinn og úrræðagóður

  • Vinnur sjálfstætt og skipulega og sýnir frumkvæði

  • Þrífst bæði í sjálfstæðri vinnu á vettvangi og í samstarfi við teymi í fjarvinnu

Hæfniskröfur

  • Bílpróf, þar sem starfið felur í sér ferðir milli starfsstöðva viðskiptavina

  • Góð þekking á Windows-tölvum, Microsoft 365 og jaðarbúnaði

  • Reynsla af uppsetningu, rekstri eða úrlausn tæknilegra vandamála

  • Góð færni í bilanagreiningu og lausn vandamála

  • Sjálfstæð og öguð vinnubrögð ásamt góðu skipulagi

  • Góð íslenskukunnátta

Kostur en ekki skilyrði

  • Microsoft-vottanir, til dæmis á sviði endpoint- eða Microsoft 365-lausna

  • Reynsla af rekstri upplýsingatæknikerfa fyrirtækja

  • Þekking á Active Directory og Microsoft Server

  • Þekking á fundarrýmislausnum, prentumhverfi eða almennum netbúnaði

Við hvetjum öll kyn til að sækja um. Ef þú hefur áhuga á starfinu en uppfyllir ekki allar hæfniskröfur hvetjum við þig samt til að sækja um. Þú gætir einmitt verið einstaklingurinn sem við leitum að.

Hjá Advania munt þú

  • Starfa með öflugu teymi með mikla reynslu og þekkingu á upplýsingatækni

  • Takast á við fjölbreytt verkefni og leysa raunveruleg tæknileg úrlausnarefni

  • Fá tækifæri til að þróast í starfi og byggja áfram upp þekkingu þína

  • Njóta sveigjanleika í starfi þar sem verkefnin leyfa

  • Vera í samskiptum við fjölbreyttan hóp viðskiptavina

  • Starfa hjá fyrirtæki sem leggur áherslu á jafnrétti, sjálfbærni og að draga úr kolefnisspori sínu

Vinnustaðurinn Advania

Vinnustaðurinn er fjölskylduvænn, lifandi og skemmtilegur. Áherslan á að vera einn besti vinnustaður landsins kemur best fram í vinnustaðagreiningum sem hafa sýnt mikla ánægju starfsfólks um árabil. Advania hefur markað sér fjarvinnustefnu og stendur starfsfólki til boða að vinna að hluta til í fjarvinnu. Í höfuðstöðvum okkar í Guðrúnartúni er svo boðið upp á mat í glæsilegu mötuneyti, góða líkamsræktaraðstöðu og leikherbergi - bæði fyrir starfsfólk og stuttfætta gesti.

Advania hefur markað sér bæði jafnréttisstefnu og sjálfbærnistefnu. Við leggjum mikla áherslu á fjölbreytileika og jafnrétti og hlaut Advania jafnlaunavottun árið 2018 fyrst íslenskra upplýsingatæknifyrirtækja. Einnig fylgjumst við grannt með okkar kolefnisspori, aðfangakeðju og áhrifum okkar á samfélagið og setjum okkur háleit markmið um úrbætur.

Ef þú leitar að spennandi verkefnum, góðu vinnuumhverfi og hressu samstarfsfólki, þá finnurðu það hjá okkur. Gildi Advania eru snerpa, ástríða og hæfni.

Ferli ráðninga

  1. Tekið á móti umsóknum

  2. Yfirferð umsókna

  3. Boðað í fyrstu viðtöl

  4. Boðað í seinni viðtöl

  5. Verkefni eða próf lögð fyrir ef við á

  6. Öflun umsagna / meðmæla

  7. Ákvörðun um ráðningu

  8. Öllum umsóknum svarað

Starfsfólk mannauðssviðs ásamt deildarstjóra, forstöðumanni og framkvæmdastjóra þess sviðs sem starfið tilheyrir hafa aðgang að þeim umsóknum sem berast. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar veitir Skúli Axelsson, deildarstjóri notenda- og útstöðvarþjónustu, skuli.axelsson@advania.is / 4409000.

About once a week, only when there is something new. One click to stop. Privacy

Similar jobs in Ísafjörður at other employers

More jobs at hysing.is

Browse similar jobs