Cyber Security Operations Specialist

hysing.is · Reykjavik, Iceland
Location
Reykjavik, Iceland
Work mode
On-site
Seniority
Mid-level
Salary
Not stated
Department
Rekstur og innviðir
Languages
EN
Posted
20 Nov 2026

Verified open 24 Nov 2026 · Source: Teamtailor

About the role

Advania leitar að hæfileikaríkum og metnaðarfullum sérfræðingi til að ganga til liðs við Skjaldar-teymið, sem sinnir verkefnum á sviði netöryggis fyrir viðskiptavini Advania. Ef þú brennur fyrir öryggismálum og hefur reynslu af greiningu og viðbrögðum við öryggisatvikum viljum við heyra frá þér.

Teymið er skipað fjölbreyttum hópi sérfræðinga með mismunandi tæknilegar áherslur sem sinna verkefnum tengdum Azure, Microsoft 365 og öryggismálum.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Greina ógnir og veikleika í umhverfi viðskiptavina Advania.

  • Bregðast við öryggisatvikum.

  • Framkvæma ítarlegar öryggisgreiningar á umhverfum.

  • Stuðla að auknu öryggi hjá viðskiptavinum Advania.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Reynsla af störfum við netöryggi eða menntun sem nýtist í starfi.

  • Þekking á Microsoft 365 XDR.

  • Þekking á Microsoft 365, Windows og Windows Server.

  • Færni í notkun greiningartækja, til dæmis SIEM.

  • Góð enskukunnátta.

  • Hæfni til að tileinka sér nýja þekkingu og tækni.

  • Hæfni til að vinna eftir skilgreindum ferlum.

  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.

  • Framúrskarandi þjónustulund.

  • Gagnrýnin og lausnamiðuð hugsun.

Vinnustaðurinn Advania

Vinnustaðurinn er fjölskylduvænn, lifandi og skemmtilegur. Áherslan á að vera einn besti vinnustaður landsins kemur best fram í vinnustaðagreiningum sem hafa sýnt mikla ánægju starfsfólks um árabil. Advania hefur markað sér fjarvinnustefnu og stendur starfsfólki til boða að vinna að hluta til í fjarvinnu. Í höfuðstöðvum okkar í Guðrúnartúni er svo boðið upp á mat í glæsilegu mötuneyti, góða líkamsræktaraðstöðu og leikherbergi - bæði fyrir starfsfólk og stuttfætta gesti.

Advania hefur markað sér bæði jafnréttisstefnu og sjálfbærnistefnu. Við leggjum mikla áherslu á fjölbreytileika og jafnrétti og hlaut Advania jafnlaunavottun árið 2018 fyrst íslenskra upplýsingatæknifyrirtækja. Einnig fylgjumst við grannt með okkar kolefnisspori, aðfangakeðju og áhrifum okkar á samfélagið og setjum okkur háleit markmið um úrbætur.

Ef þú leitar að spennandi verkefnum, góðu vinnuumhverfi og hressu samstarfsfólki, þá finnurðu það hjá okkur. Gildi Advania eru snerpa, ástríða og hæfni.

Ferli ráðninga

  1. Tekið á móti umsóknum til 4. desember 2026

  2. Yfirferð umsókna

  3. Boðað í fyrstu viðtöl

  4. Boðað í seinni viðtöl

  5. Verkefni eða próf lögð fyrir ef við á

  6. Öflun umsagna / meðmæla

  7. Ákvörðun um ráðningu

  8. Öllum umsóknum svarað

Starfsfólk mannauðssviðs ásamt deildarstjóra, forstöðumanni og framkvæmdastjóra þess sviðs sem starfið tilheyrir hafa aðgang að þeim umsóknum sem berast. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar veitir Helga Björk Árnadóttir, deildarstjóri, helga.bjork.arnadottir@advania.is / 4409000.

About once a week, only when there is something new. One click to stop. Privacy

Similar jobs in Reykjavik at other employers

More jobs at hysing.is

Browse similar jobs